| Þyngd | 0,3 kg |
|---|---|
| Ummál | 15 × 15 × 15 cm |












Cloud B – Uglan – Svefnþjálfi
8.995kr.
- Hjálpar börnum að skilja mun á degi og nóttu
- Gerir háttatíma og morgna skemmtilegri og auðveldari
- Hannaður með daglegt fjölskyldulíf í huga
- Styður við sjálfstæði og góðar svefnvenjur
Availability: 5 á lager
Owlie er vekjaraklukka sem hjálpar börnum, frá 3ja ára aldri, að sofa betur og verða sjálfstæðari með eigin svefnrútínu. Hönnuð til að gera háttatíma og morgna rólegri, skýrari og auðveldari fyrir börn að skilja.
Litrík ljósamerki hjálpa börnunum að þekkja réttu stundir dagsins:
- Rauð eyru sýna að nú er kominn háttatími
- Gul/appelsínugul eyru gefa til kynna að það sé að koma að því að vakna
- Græn eyru þýða að nú megi fara á fætur
Til að stuðla að betri svefni hefur uglan fjögur róandi hljóð sem hjálpa börnum að sofna ásamt fjórum glaðlegum morgunlögum til að vakna.
Uglan er hönnuð með þægindi fjölskyldunnar í huga og getur bæði gengið fyrir rafhlöðu eða verið tengd í rafmagn (snúra fylgir). Innbyggður snertiskynjari gerir börnum kleift að kveikja á skjáljósinu eða slökkva á vekjaranum með einfaldri snertingu.
Hægt er að velja hvort klukkan sýni tíma á 12 eða 24 tíma formi. Einnig er hún með sérstakan lúrastillingu fyrir daglúra og tvær aðskildar vekjarastillingar fyrir virka daga og helgar.
Owlie er bæði skemmtileg og praktísk lausn sem hjálpar börnum að tileinka sér góðar svefnvenjur, eykur sjálfstæði þeirra og gefur foreldrum aðeins meiri ró í daglegu lífi.
Eiginleikar
- Litakóðuð ljós (rautt, gult, grænt)
- 4 róandi hljóð fyrir háttatíma
- 4 glaðleg vekjulög
- Lúrastilling og aðskildar vekjarastillingar fyrir virka daga og helgar
- Snertiskynjari
- Virkar bæði með rafhlöðu eða rafmagni (snúra fylgir)
- 12 eða 24 tíma klukkustilling