| Þyngd | 0,7 kg |
|---|---|
| Ummál | 15 × 10 × 15 cm |




Dooky – Heimilispakki af öryggisvörum fyrir barnið
4.995kr.
Í pakkanum eru 25 vandlega valdar öryggisvörur sem hjálpa til við að vernda börn gegn algengum hættum á heimilinu. Þar má finna Dooky hornhlífar, hurðarstoppara, innstunguhlífar, barnalæsingar fyrir skápa og skúffur, salernislæsingu og takkahlíf fyrir eldavél.
Allar vörurnar eru í hlutlausum litum, hvítum eða gegnsæjum, svo þær falla vel að flestum heimilum án þess að draga athygli að sér. Uppsetning er einföld og fljótleg með meðfylgjandi límræmum og engin verkfæri eru nauðsynleg.
Ef vörurnar eru fjarlægðar síðar skilja þær ekki eftir límleifar eða skemmdir á yfirborði, sem gerir pakkann einnig hentugan fyrir leiguhúsnæði, sumarhús eða heimsóknir til afa og ömmu.
Þessi pakki er frábær lausn fyrir foreldra sem vilja tryggja öryggi barnsins án þess að þurfa að kaupa margar vörur hverja í sínu lagi. Hann er einnig tilvalin gjöf fyrir verðandi eða nýbakaða foreldra sem vilja undirbúa heimilið fyrir nýjan fjölskyldumeðlim.
- Heildstæður heimilispakki með 25 öryggisvörum
- Inniheldur allt sem þarf til að gera heimilið öruggara fyrir lítil börn
- Hlutlausir litir og gegnsæ hönnun sem fellur vel að flestum innréttingum
- Auðveld uppsetning með límræmum – engin verkfæri nauðsynleg
- Má fjarlægja án þess að skilja eftir límleifar eða skemmdir
- Tilvalinn fyrir heimilið eða sumarbústaðinn
- Frábær gjöf fyrir verðandi eða nýbakaða foreldra
Innihald pakkans:
-
- 4 gegnsæjar, ávalar hornhlífar
- 4 gegnsæjar, þríhyrndar hornhlífar
- 2 hvítir hurðarstopparar
- 6 hvítar innstunguhlífar
- 2 gegnsæjar fjölnota barnalæsingar (gerð I)
- 1 hvít/grá fjölnota barnalæsing (gerð II)
- 2 hvítar barnalæsingar fyrir glerskápa og húsgögn
- 1 hvít salernislæsing
- 2 fjölnota barnalæsingar
- 1 takkahlíf fyrir eldavél
strikanúmer: 5038278017074