

Nitor fatalitur – steingrár
3.895kr.
Steingrár fatalitur frá Nitor.
Gefðu fötunum nýtt líf með Nitor fatalit. Auðveld og fljótleg leið til að endurnýja dofna liti, breyta lit á flíkum eða skapa alveg nýtt útlit. Liturinn er ætlaður fyrir litun í þvottavél og hentar best fyrir náttúrulegar trefjar eins og bómull, hör og viskósa. Með Nitor fatalitum geturðu frískað upp á uppáhaldsflíkurnar og lengt líftíma þeirra á einfaldan og umhverfisvænni hátt.
Leiðbeiningar
- Þvoðu flíkina áður en þú litar hana ef hún er óhrein.
- Settu raka flíkina í tromlu þvottavélarinnar.
- Helltu innihaldi litarpokans í tromluna samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Bættu við Nitor Fixer (Textile Dye Salt) ef liturinn krefst þess. Saltið tryggir betri litaupptöku og jafnari litun.
- Veldu þvottakerfi samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum fatalitsins (yfirleitt 40–60°C).
- Að litun lokinni skaltu þvo flíkina með þvottaefni samkvæmt þvottaleiðbeiningum hennar.
- Keyrðu síðan tóma þvottalotu eða þvoðu dökkan þvott til að hreinsa mögulegar litaleifar úr vélinni.
Gott að vita
- Hentar best fyrir bómull, hör og viskósa.
- Ull, silki og gerviefni eins og pólýester og akrýl taka lit takmarkað eða alls ekki.
- Endanlegur litur fer eftir upprunalegum lit flíkurinnar og efnasamsetningu hennar.
- Fylgdu alltaf leiðbeiningum á umbúðum til að ná sem bestum árangri.