Skilmálar
Afhending
Þær bækur sem þú pantar á vefnum eru sendar til þín með Póstinum ef þú býrð utan höfuðborgarsvæðisins. Ef þú pantar hjá okkur fyrir kl. 12.00 á virkum dögum, sendum við pakkann samdægurs til Póstsins, sem keyrir hann út næsta virka dag á eftir og ætti að jafnaði að berast 2-3 virkum dögum eftir pöntun. Einnig geturðu sótt bækurnar til okkar í Akralind 2, 201 Kópavogi alla virka daga milli klukkan 09.00 og 16.00 þar sem pakkinn verður á nafni þess sem pantaði. Það getur komið fyrir að bækur séu tímabundið uppseldar og ef svo er látum við þig vita með tölvupósti eða símhringingu.
Sendingarkostnaður
Allar pantanir eru sendar með Póstinum og eru sendingarmöguleikar eftirfarandi:
Pósturinn – Pakki pósthús:
Pöntun send á næsta pósthús. Verð: 1.390 kr.
- Pakki er afhentur á pósthúsi viðtakanda við framvísun tilkynningar og skilríkja með mynd.
- Tilkynning um pakka er send á GSM númer sem skráð er á pakkann. Ef ekkert GSM númer er skráð er prentuð út tilkynning og hún borin út á það heimilisfang sem skráð er fyrir pakkanum.
Pósturinn – Pakki heim:
Pantanir eru almennt keyrðar heim 1-3 dögu eftir póstlagningu. Verð: 1.940 kr.
- Pakkar heim eru keyrðir út til viðtakenda þar sem Pósturinn hefur heimakstursleyfi. Ef póstlagt er fyrir síðasta póstlagningartíma verður pakkinn keyrður út 1., 2. eða 3. dag.
- Gæðastaðlar Póstsins miðast við að tilraun til afhendingar sé reynd a.m.k. 85% tilfella fyrsta dag eftir póstlagningu þar sem það er mögulegt.
Pósturinn – Pakki póstbox:
Póstbox eru opin 24/7 og eru staðsett víðsvegar um landið. Verð 1.390 kr.
Sjá staðsetningar hér.
- Pakki póstbox telst afhentur viðtakanda þegar QR kóði hefur verið skannaður eða pin númer slegið inn og hólf opnast.
- Gæðastaðlar Póstsins miðast við afhendingu daginn eftir í Póstbox í 90% tilfella.
- Póstbox eru fyllt tvisvar á dag virka daga og einu sinni á laugardögum.
- Viðskiptavinir geta eingöngu móttekið eftirfarandi pakkasendingar í Póstbox:
- Innlendar pakkasendingar undir stærðarmörkum.
- Hámarksþyngd fyrir Pakki Póstbox er 20 kg.
- Innlendar pakkasendingar með engum gjöldum sem viðtakandi þarf að greiða.
- Innlendar pakkasendingar án viðbótarþjónustu að undanskildu brothætt.
- Til að nota póstbox þarf að skrá sig á minnpostur.is og velja þar póstbox sem afhendingarval. Hægt er að breyta um valið póstbox hvenær sem er.
- Eftir að póstbox hefur verið valið munu allar sendingar framvegis berast í það póstbox, óháð utanáskrift sendinganna. Tilkynningar berast í GSM símanúmer.
Greiðslur og öryggi við pantanir
Verð
Skilaréttur
Við hjá Setberg viljum að þú sért ánægður með það sem þú verslar hjá okkur og ef ekki, þá getirðu skilað því sem þú keyptir og fengið endurgreitt innan 30 daga. Skilaréttur tekur ekki til útsöluvöru. Til þess að við getum endurgreitt þér þarftu að skila vörunni óskemmdri og í upprunalegu útliti (upprunalegum umbúðum) og láta kvittun fylgja með. Þú getur sent okkur bækurnar í pósti eða komið til okkar í Akralind 2, 201 Kópavogi samkvæmt samkomulagi. Þó er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur nema um galla sé að ræða. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.